Lestrarbókum á yngsta stigi er skipt í fimm þyngdarflokka og er Risaeðla á róló í 2. flokki.
Smábækur Menntamálastofnunar eru einkum ætlaðar börnum á yngsta stigi grunnskólans sem eru að læra að lesa. Reynt er að höfða til ólíkra áhugasviða barnanna með innihaldsríkum texta og ríkulegum myndskreytingum þrátt fyrir einfalda framsetningu.
Daði er einn á róló og leiðist. Hann hefur engan til að leika við. En það breytist allt í einu þegar risaeðlan Dídí stingur hausnum upp úr sandkassa. Dídí er fyndin og tekur upp á ótrúlegum hlutum. Dagurinn þegar Daði hittir risaeðlu á róló verður ógleymanlegur!