Þemahefti í tónmennt þar sem mikilvægi tímans í tónlist er kynnt og samspil tímans og náttúrunnar er skoðað. Einkum er unnið með árstíðirnar, sólarhringinn og sjávarföllin. Í námsefninu eru sönglög frá ýmsum heimshornum og áhersla lögð á að miðla þeim með hlustun og endurtekningu. Frumþættir tónlistar fléttast inn í efnið, s.s. form, tónstyrkur, tónhæð, tónlengd, túlkun og rými. Í kennsluleiðbeiningum eru verkefni til útprentunar.
Efnið samanstendur af nemendabók, kennarabók og hlustunarefni inni á læstu svæði kennara.
Athugið að kennarabók ásamt hlustunarefni er væntanleg til útgáfu í lok október 2022.