Bókin Bakarar er níunda bókin í flokki örbóka en flokkurinn er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa. Í bókinni eru allir bókstafirnir æfðir.
Lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa er ætlað byrjendum í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Allur texti er án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili. Efnið skiptist í fjórar vinnubækur, 24 lestrarbækur, örbækur, lesspil, kennsluleiðbeiningar, verkefni á vef o.fl.
Örbækurnar eru léttustu bækurnar í flokknum Listin að lesa og skrifa og ætlaðar þeim börnum sem þurfa mjög mikla endurtekningu og texta með stuttum orðum á meðan þau eru að ná tökum á lestrarnáminu.