Málið í mark – Sagnorð er vinnuhefti á rafrænu formi í íslenskri málfræði fyrir unglingastig grunnskóla. Í heftinu eru fjölbreytt verkefnisem ætlað er að auka færni nemenda í að beita málinu.
Efnisþættir:
- hvað eru sagnorð?
- nútíð og þátíð sagnorða
- eintala og fleirtala sagnorða
- persónur sagnorða
- ópersónulegar sagnir
- stofn sagnorða
- áhrifssögn og andlag
- áhrifslausar, áhrifssagnir og sagnfylling
- sjálfstæðar og ósjálfstæðar sagnir
- samsettar sagnir
- myndir sagna
- hættir sagna
- kennimyndir sagna
- aðalsögn og hjálparsögn
- nafnháttur og framsöguháttur
- veikar og sterkar sagnir
- orsakasagnir