Þau góðu tíðindi áttu sér stað í dag að öll börn sem sóttu um skólavist í framhaldsskóla fyrir haustið hafa fengið pláss.
Menntamálastofnun og framhaldsskólar hafa nú lokið innritun og í hádeginu í dag var opnað fyrir niðurstöður allra nýrra nemenda á framhaldsskólastigi á Íslandi, bæði á bóknámsbrautum, í iðn- og starfsnámi og á starfsbrautum.
Við óskum öllum nýnemum haustins velfarnaðar í sínu námi.