Skráningar vegna næstu íslenskuprófa fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt hefjast 8. mars og standa til 19. apríl. Athugið að ekki er hægt að skrá sig utan skráningartímabils. Mímir – símenntun hefur umsjón með skráningu og gefur upplýsingar um íslenskuprófið. Prófgjald er 40.000kr og óendurgreiðanlegt eftir skráningu. Niðurstöður verða sendar rafrænt á netfang sem skráð er við skráningu.
Skráning í prófið er rafræn en hér er hlekkur á skráningu.
Prófin verða haldin á eftirfarandi stöðum:
Ísafjörður 14. maí 2024 kl. 13:00.
Egilsstaðir 15. maí 2024 kl. 13:00.
Akureyri 16. maí 2024 kl. 13:00.
Í Reykjavík 21. - 29. maí 2024 kl. 9:00 og 13:00.