Í bókinni Dúfur í Dalabæ bætast bókstafirnir d og au við bókstafina í, ó, s, á, l, a, i, r, ú, m, u, v, e, n, o, æ, f, j, é, h, t, g, y, ý, b, þ og k.
Bókin er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa og nr. 13 í röð tuttugu og fjögurra lítilla lestrarbóka. Efnið skiptist að öðru leyti í fjórar vinnubækur, litlu lestrarbækurnar, örbækur, lesspil, kennsluleiðbeiningar, verkefni á vef o.fl. Það er fyrir byrjendur í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Allur texti er án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili.