1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Í stuttu máli

Í stuttu máli

Opna vöru
  • Höfundur
  • Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir
  • Myndefni
  • Einar Másson
  • Vörunúmer
  • 40749
  • Skólastig
  • Miðstig
  • Unglingastig
  • Útgáfuár
  • 2025

Í stuttu máli er safn smásagna og verkefna fyrir nemendur sem læra íslensku sem annað tungumál á 2. hæfnistigi samkvæmt hæfnirammanum í kafla 19.4 í aðalnámskrá grunnskóla. Efnið hentar bæði nemendum á miðstigi og unglingastigi.

Sögurnar eru misþungar og þyngjast stig af stigi eftir því sem líður á. Flestar sagnanna henta vel miðstigi, en sagan Viltu skutla mér? er einkum ætluð unglingastigi.

Markmið sagnanna er að þjálfa lesskilning og efla orðaforða nemenda. Jafnframt má nýta þær sem grunn að fjölbreyttum verkefnum, svo sem samtalsverkefnum, hlutverkaleikjum, myndbandsgerð og ritun. Þannig gefst tækifæri til að þjálfa öll helstu hæfnisvið tungumálanáms: hlustun, lestur, talað mál og ritun.

Sögurnar eru mislangar. Hverri sögu eða kafla fylgja verkefni sem unnin eru fyrir lestur, á meðan á lestri stendur og eftir lestur. Einnig fylgja efninu kennsluleiðbeiningar.