1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Sögulandið - Sjóræningjarnir eru komnir - Rafbók

Sögulandið - Sjóræningjarnir eru komnir - Rafbók

Opna vöru
  • Höfundur
  • Brynhildur Þórarinsdóttir
  • Myndefni
  • Sigmundur Breiðfjörð og Bergrún Íris Sævarsdóttir
  • Vörunúmer
  • 40765
  • Skólastig
  • Miðstig
  • Unglingastig
  • Útgáfuár
  • 2026
  • Lengd
  • 102 bls.

Sjóræningjarnir eru komnir! er þriðja bókin í bókaflokknum Sögulandið og leiðir lesandann inn í einn myrkasta kafla íslenskrar sögu.

Sagan segir frá Agli, ellefu ára dreng sem býr með fjölskyldu sinni í Vestmannaeyjum á 17. öld. Ógnin vofir yfir þegar fregnir berast af sjóræningjum og íbúar eyjanna búa sig undir hið versta. Þegar Tyrkjaránið skellur á fær Egill mikilvægt hlutverk – en hvernig á barn að takast á við grimma ribbalda þegar hann á jafnvel í vandræðum með að ráða við eina freka kind?

Í þessari spennandi og áhrifaríku sögu fá lesendur innsýn í líf barna á tímum ótta, óvissu og hörmunga. Sjóræningjarnir eru komnir! lýsir Tyrkjaráninu 1627 frá sjónarhorni barns og sameinar sögulegar staðreyndir og mannlega frásögn sem vekur fortíðina til lífsins.


Tengdar vörur