Námsefnið tekur á fjölbreyttum þáttum sem tengjast kynlífi og kynþroska.
Fjallað er m.a. um kynhvöt, sjálfsfróun, kynhneigð, sambönd, samskipti, smokka og vernd, mörk, samþykki og ábyrgð. Markmiðið er að veita áreiðanlega og aðgengilega fræðslu sem styður við sjálfsvitund, virðingu og upplýstar ákvarðanir.
Áhersla er lögð á að skoða tilfinningar sem fylgja kynþroska og nánum samskiptum, svo sem forvitni, spennu, óöryggi, ást, höfnun og skapsveiflur. Jafnframt er rýnt í þau skilaboð sem unglingar fá úr samfélaginu og fjölmiðlum um kynlíf og líkama og hvatt til gagnrýninnar hugsunar.
