1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Lúkas lesmús (rafbók)

Lúkas lesmús (rafbók)

Opna vöru
  • Höfundur
  • Brynhildur Stefánsdóttir
  • Myndefni
  • Brynhildur Stefánsdóttir
  • Þýðing
  • Brynhildur Stefánsdóttir (ensk þýðing), Elźbieta Anna Kowalczyk (pólsk þýðing)
  • Vörunúmer
  • 40372
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2026
  • Lengd
  • 32 bls.

Bókin fjallar um músina Lúkas sem bjargar lífi sínu með því að kunna að lesa.

Sagan birtist á þremur tungumálum: íslensku, ensku og pólsku. Á hverri síðu eru spurningar úr efni sögunnar, ályktun og forspá. Aftast í bókinni eru orðskýringar og verkefni. Efnið býður upp á fjölbreytta úrvinnslu þar sem áhersla er lögð á umræður, ritun, lesskilning og orðaforða.

Bókin býður upp á brú milli skóla og heimila, t.d. gæti tvítyngdur nemandi með pólskt bakland lesið íslenska textann í skólanum en deilt sögunni heima á pólsku. Þannig auðveldar bókin samvinnu heimilis og skóla og styður við læsi barna – hvort sem þau hafa íslensku, ensku eða pólsku að móðurmáli. Einnig geta íslenskumælandi börn spreytt sig á ensku eða pólsku og þannig lært að sjá tungumál sem tækifæri til samskipta og skilnings.