Í bókinni Móri í Laos eru bókstafirnir í, ó, s, á, l, a, i, r, ú, m, u, v, e, n og o æfðir ásamt orðmyndunum og, ekki, sagði, ég og að.
Bókin er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa en efnið skiptist í fjórar vinnubækur, fjölmargar litlar lestrarbækur, 16 örbækur, lesspil, kennsluleiðbeiningar, verkefni á vef o.fl.
Listin að lesa og skrifa er fyrir byrjendur í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð.
Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Allur texti er án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili.