Next up! kennsluleiðbeiningar fylgja námsefninu Next up! 1,2 og 3 kjarnaefni í ensku fyrir unglingastig grunnskóla.
Kennsluleiðbeiningarnar fylgja nemendabókinni opnu fyrir opnu. Á spássíunum með hverjum kafla er að finna:
• þverfagleg viðfangsefni
• viðbótarupplýsingar um efnið
• kennslufræðilegar ráðleggingar, viðbótarverkefni og samtalsleikir
• tillögur að stuðningi til viðbótar því sem er í nemendabók
• Before, During og After reading – leiðsagnarlestur í skólastofu
