Líf á landi er námsefni í náttúrufræði sem einkum er ætlað miðstigi grunnskóla, þar sem fyrir eru bækurnar Lífríkið í sjó og Lífríkið í fersku vatni. Bókin leysir af hólmi eldra námsefni, Lífríkið á landi. Umfjöllunarefnið er landið og lífríki þess, skógar, hraun, móar, melar, votlendi, valllendi, fjöll og manngert umhverfi. Mikill fjöldi ljósmynda og skýringarteikninga prýðir bókina.