Próftíminn er sá tími sem nemandinn fær til að vinna að prófverkefnum – svara spurningum og skrifa ritgerðir. Þar við bætist sá tími sem fer í leiðbeiningar til nemenda og nafnakall. Skólastjóri skal sjá til þess að próf hefjist á tilsettum tíma. Miðað skal við að allir nemendur séu sestir og geti hafist handa án truflunar á þeim tíma. Á tilsettum tíma í lok prófs eiga allir nemendur að hafa skráð sig út úr prófi sínu. Eftirfarandi töflur sýna tímasetningar samræmdra könnunarprófa haustið 2016.
7. bekkur | dagsetning | fyrirlögn 1 | fyrirlögn 2 |
Íslenska | 22. september | kl. 09:00 - 10:20 | 10:40 - 12:00 |
Stærðfræði | 23. september | kl. 09:00 - 10:20 | 10:40 - 12:00 |
4. bekkur | dagsetning | fyrirlögn 1 | fyrirlögn 2 |
Íslenska | 29. september | kl. 09:00 - 10:10 | kl. 10:30 - 11:40 |
Stærðfræði | 30. september | kl. 09:00 - 10:10 | kl. 10:30 - 11:40 |
Samræmd könnunarpróf hefjast kl. 9:00 að morgni prófdags og er próftími 70 mínútur í 4. bekk og 80 mínútur í 7. bekk.
Hefjist próf fyrr eða síðar en þessar tímasetningar segja til um hliðrast aðrar tímasetningar til í samræmi við það. Gott er að skrifa þann tíma á töflu eða minnisblað í stofunni. Mikilvægt er að tímamörk séu virt.