Markmið
Markmið þessarar umhverfisstefnu er að fella starfsemi Menntamálastofnunar að sjónarmiðum umhverfisverndar og sjálfbærrar þróunar, þannig að hún valdi sem minnstri mengun og álagi á auðlindir og umhverfi. Hafa ber sjónarmið umhverfisverndar í huga við alla þætti rekstrar og ákvarðana.
- Leitast skal við að ná hámarksnýtingu og draga úr hvers kyns sóun verðmæta, t.d. orku og aðfanga. Fremur ber að velja viðurkenndar umhverfismerktar vörur en þær sem valda meiri skaða á umhverfinu.
- Úrgang sem til fellur ber að endurnota og endurvinna eftir því sem kostur er og tryggja að spilliefnum sé fargað á viðeigandi hátt. Draga skal úr notkun einnota hluta eins og kostur er.
- Stefnt skal að því að mæla eftir föngum innkaup og notkun á vöru og þjónustu og þann sparnað sem hlýst af því að draga úr sóun og koma endurnýtanlegum hlutum í verð.
Leiðir að markmiðum
Innkaup
Við innkaup skal tekið tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða.Ef vörur eru sambærilegar að öðru leyti ber að velja þá tegund sem telst síður skaðleg umhverfinu. Vara sem er dýrari í innkaupum kann að leiða til beins sparnaðar þegar til lengri tíma er litið, t.d. orkusparandi ljósaperur. Við innkaup á vöru skal athuga hvort hún er merkt með viðurkennd umhverfismerki, s.s. merki Evrópusambandsins eða norræna svansmerkinu eða uppfylli þær kröfur sem þar eru gerðar.
Til eru ákvæði um umhverfisvænar vörur inni í rammasamningum hjá Ríkiskaupum, t.d. um ljósritunarpappír og sumar skrifstofuvörur.
Áréttað skal að allir þeir sem annast innkaup fyrir Menntamálastofnun hagi þeim með tilliti til framangreindra atriða.
Pappírsnotkun
Nota skal pappír sem ekki er klórbleiktur og æskilegt er að hann sé endurunninn að hluta eða öllu leyti og/eða merktur með viðeigandi umhverfismerki. Þetta á jafnt við um pappír til prentunar og notkunar á skrifstofum.
Forðast skal að nota gluggaumslög með plastfilmu, heldur með glugga úr endurnýjanlegu efni. Einnig ber að forðast umslög með lími úr leysiefnum, þar sem ekki er hægt að endurvinna þau. Best er að kaupa svansmerkt umslög. Hvatt er til aukinnar notkunar fjölnota umslaga. Draga ber eftir föngum úr pappírsnotkun jafnt í útgáfustarfsemi sem annarri starfsemi. Þetta er hægt með því m.a. að:
- forðast prentun á tölvupósti og lesa yfir texta á tölvuskjá fremur en í útprentun
- ljósrita og prenta báðum megin á hverja síðu; nýta úrgangspappír til gerðar minnismiða
- nota sérstakan prentara með notuðum blöðum (þ.e. með texta öðrum megin) til útprentunar á handritum, minnisblöðum og öðrum óformlegum texta.
Einnig skal gæta þess að draga sem mest úr pappírsnotkun við frágang samninga. Sjálfsagt er að reyna að mæla pappírsnotkun og fylgjast með hvernig gengur að draga úr henni. Mikilvægt er að starfsmenn meti hverju sinni hvað unnt er að gera í þessu sambandi. Allan pappír á að flokka og senda í endurvinnslu. Sjá einnig www.gamar.is
Ýmis skrifstofugögn og vélar
- Forðast á að nota vörur sem innihalda lífræn leysiefni. Yfirleitt er hægt að fá vörur sem nota vatnsleysanleg efni í stað hinna. Oft er hægt að þekkja vörur sem ber að forðast á því að á þeim eru varúðarmerkingar vegna hugsanlegs heilsutjóns.
- Forðast ber vörur sem innihalda PVC-plast (s.s. möppur) en nota þess í stað sambærilegar vörur úr pappa eða öðrum gerðum plasts. Þetta á einnig við um frágang á bókakápum.
- Nota skal fjölnota vörur fremur en einnota þar sem hægt er að koma því við
- Velja skal tæki sem eru merkt umhverfismerki, s.s. svaninum eða bláa englinum. Slíkar vélar fullnægja ströngum kröfum um losun ryks og ósons; hávaða, orkunotkun og möguleika á endurvinnslu ákveðinna hluta vélanna. Blekhylki í ljósritunarvélum og bréfsímum skulu sett í endurvinnslu; æskilegt er að þau séu merkt umhverfismerki.
Notkun upplýsingatækni
Með markvissri notkun upplýsingatækni er unnt að koma við mikilvirkum umhverfisbótum og jafna aðgengi að þjónustu stofnunarinnar, óháð búsetu og afgreiðslutíma. Leggja þarf aukna áherslu á að þjónusta við viðskiptavini fari fram á Netinu og að þar verði hægt að reka öll erindi við stofnunina. Markviss notkun tölvupósts og netsamskipta innanhúss er mikilvægt framlag til umhverfisverndar. Gögn sem þurfa að berast á milli manna fari með tölvupósti og fundir skulu boðaðir rafrænt. Forðast skal alla óþarfa útprentun.
Umbúðanotkun og endurnýting
Hægt er að draga úr sóun vegna umbúðanotkunar m.a. með því að velja fremur vörur sem nota minni umbúðir og með því að kaupa fremur inn í stórum einingum en smáum.
- Úrgang á að flokka, þannig að endurnýtanlegum úrgangi sé safnað sérstaklega og skilað til endurvinnslu. Móttökustaði fyrir pappír, umbúðir og rafhlöður á að merkja sérstaklega til að minna á slíka flokkun.
- Umbúðir sem berast stofnuninni á að endurnota eins og kostur er og nota skal endurunninn umbúðapappír.
Menntamálastofnun stuðlar að því að draga úr úrgangi með því að nota lágmarksumbúðir, sem þó hlífa því sem sent er út á fullnægjandi hátt.
Efnanotkun og hreingerningar
Forðast ber að nota hvers kyns eiturefni og hættuleg efni til hreingerninga. Hafa ber í huga að ráðlagðir skammtar framleiðenda á þvottaefnum eru oft óþarflega stórir. Eðlilegt er að setja umhverfiskröfur í þjónustuútboð varðandi hreingerningar
- Halda skal uppþvotti í lágmarki með skynsamlegri notkun matar- og drykkjaríláta.
Orkunotkun
- Slökkva ber á ljósum og öllum rafmagnstækjum í lok hvers vinnudags til þess að draga úr orkunotkun.
- Forðast skal að láta ljós loga og tæki ganga að óþörfu.
- Leitast skal við að draga úr hljóðmengun, nýta dagsbirtu til lýsingar eins og kostur er og lágmarka orkunotkun, m.a. með reglubundinni stillingu tækja og fyrirbyggjandi viðhaldi.
Samgöngur
Minnt er á að samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum Íslendinga ber okkur eftir megni að draga úr útstreymi svokallaðra gróðurhúsalofttegunda. Leita skal allra leiða til að draga sem mest úr ónauðsynlegum akstri vegna starfsemi stofnunarinnar og ferða starfsmanna. Bent skal á að nota þjónustu Íslandspósts sem mest.
Virk þátttaka starfsmanna – fræðsla
- Bjóða á starfsfólki upp á námskeið og fyrirlestra um umhverfismál og aðgengilegt fræðsluefni þar um.
- Umhverfisstefna á vinnustað verður ekki virk nema að baki liggi áhugi og vilji starfsfólks. Takmarkið er að slík stefna verði hluti af daglegu lífi starfsfólks, jafnt á vinnustað, heimili, ferðalagi eða annars staðar.
- Hvetja skal til líkamsræktar, neyslu á hollu fæði og heilbrigðra lífshátta starfsmanna eins og kostur er.
Ábyrgð og framkvæmd
Mikilvægt er að sérhver starfsmaður finni til ábyrgðar á því að hrinda þessari stefnu í framkvæmd og að allir standi saman um að svo verði.
Stöndum saman um að vera í fararbroddi ríkisstofnana á sviði umhverfismála.