1. Forsíða
  2. Vegna Covid-19 faraldursins

Vegna Covid-19 faraldursins

Menntamálastofnun mun fljótlega opna Fræðslugátt sem inniheldur námsefni og bjargir sem nýtast til stuðnings við heimanám. Á vefnum verður að finna leiðbeiningar um nýtingu á rafrænu námsefni Menntamálastofnunar, upplýsingar um efni á vegum RÚV og ýmsar bjargir sem nýst geta skólum og kennurum vegna kennslu. Vefurinn verður fyrst og fremst hugsaður sem stuðningur við kennara og skóla sem nú takast á við krefjandi aðstæður vegna takmarkana á skólahaldi. Foreldrar og nemendur eiga einnig að geta fundið efni sem hentað getur fyrir heimanám og verkefni daglegs lífs á meðan samkomubann varir.

Á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins má finna svör við ýmsum spurningum um skólastarf á neyðarstigi almannavarna. Einnig er á síðu Sambands íslenskra sveitarfélaga að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar vegna Covid-19 faraldursins.