Öllum skilgreindum stuðningsúrræðum fylgir viðbótarpróftími, 15 mínútur í 4. og 7. bekk og 30 mínútur á unglingastigi. Einnig er unnt að sækja sérstaklega um lengdan próftíma sem sjálfstætt stuðningsúrræði. Slíkt úrræði er einungis ætlað nemendum með námserfiðleika sem þiggja ekkert annað stuðningsúrræði.