1. Forsíða
  2. 7. Undirbúningur prófstofu

7. Undirbúningur prófstofu

Rafræn fyrirlögn krefst vandaðs undirbúnings og nauðsynlegt er að viðeigandi fagþekking sé til staðar í undirbúningsferlinu. Grunnundirbúningur er tvenns konar eftir því hvort um sé að ræða hefðbundna kennslustofu þar sem prófað er á tölvu eða spjaldtölvu, eða tölvustofu þar sem prófað er á borðtölvur. Skólar hafa þó tiltölulega frjálsar hendur þegar kemur að því að ákveða prófstað. Til að mynda má prófa inn í tölvustofu auk stakra borða fyrir tölvu eða spjaldtölvu ef rými hentar.

7.1 Hefðbundin kennslustofa

1. Borðum og stólum á að vera raðað upp þannig að einn nemandi sitji við eitt borð. Gott er að nemendi viti fyrirfram við hvaða borð hann situr. Mikilvægt er að nemandi færi sig ekki um sæti þannig að prófkóði verði rangur.

2. Á hverju borði þarf að liggja:

1. Útprentað eyðublað með nafni, kennitölu og prófkóða hvers nemanda (slík eyðublöð verða útbúin hjá Menntamálastofnun og sett inn í Skólagátt þaðan sem hægt verður að prenta þau út).

2. Eitt tæki (tölva eða spjaldtölva) sem nota skal til próftöku þarf að liggja á hverju borði.

3. Rissblað þarf að vera á hverju borði. Skólar ráða alfarið stærð blaðsins, en það getur verið mismunandi eftir plássi á borði.  Afhenda má fleiri rissblöð ef nemendur óska eftir því. Skólinn er ábyrgur fyrir að farga blöðunum að prófi loknu.

7.2 Tölvustofa

1. Ekki þarf að raða borðum sérstaklega, nema skólar kjósi svo ef nemendur sitja þétt. Líka er möguleiki í einhverjum tilfellum að snúa annarri hverri tölvu.

2. Á hverju borði þarf að liggja:

1. Útprentað A4 eyðublað með nafni, kennitölu og prófkóða sérhvers nemanda (slík eyðublöð verða útbúin hjá Menntamálastofnun og sett inn á Skólagátt þaðan sem hægt verður að prenta þau út).

2. Eitt tæki (tölva eða spjaldtölva) sem nota skal til próftöku þarf að liggja á hverju borði.

3. Rissblað þarf að vera á hverju borði. Skólar ráða alfarið stærð blaðsins, en það getur verið mismunandi eftir plássi á borði.  Afhenda má fleiri rissblöð ef nemendur óska eftir því. Skólinn ábyrgur fyrir að farga blöðunum að prófi loknu.

7.3 Próftaka   

1. Nemendur ganga inn í fyrirlagnarrýmið og setjast við það borð sem þeirra eyðublað liggur á. Nemandi getur hafið innskráningu þegar hann er tilbúinn, ekki er nauðsynlegt að allir nemendur hefji próftöku á sama tíma. Próftími hvers nemanda hefst þegar hann skráir sig inn og tíminn byrjar að telja niður. Hver nemandi getur fylgst með sínum próftíma í prófakerfinu. 

2. Áður en innskráning er hafin er brýnt fyrir nemendum að slá inn kóðann. Eflaust eru nemendur fullir eftirvæntingar og er því ekki ólíklegt að mistök verði við skráningu á prófkóða.

3. Nemendur hefja innskráningu eftir því sem þeim hentar, enda er hvatt til þess að nemendur skrái sig ekki allir inn á sama tíma ( til að minnka álag á netkerfi skólans og prófakerfið.) 

4. Þegar nemendur ljúka prófi þarf að ganga úr skugga um að farið sé út úr prófakerfinu eftir réttum leiðum, sjá leiðbeiningar. Auk þess minnum við á að þessi atriði má æfa í kynningarprófunum. Nemendur skrá sig út úr prófinu sjálfir, en kennarar mega að sjálfsögðu aðstoða nemendur við það ef svo ber undir.