1. Home
  2. Minnum á Vísubotn 2019

Minnum á Vísubotn 2019

Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember efnir Menntamálastofnun til vísnasamkeppni grunnskólanema, Vísubotn 2019, í samvinnu við KrakkaRÚV. Í keppninni spreyta nemendur sig á því að botna fyrriparta sem eru eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson. Um er að ræða tvo fyrriparta fyrir hvern aldursflokk á yngsta-, mið- og unglingastigi. Fyrir besta vísubotninn á hverju stigi verða veitt bókaverðlaun og viðurkenningarskjöl. Vonast er til að sem flestir skólar taki þátt í þessu verkefni. Hér má lesa um úrslit keppninnar í fyrra.

Hér fyrir neðan má smella á verkefni fyrir hvert stig. Nemendur á mið- og unglingastigi þurfa að huga vel að ljóðstöfum og rími en ætlast er til að nemendur á yngsta stigi einbeiti sér fyrst og fremst að ríminu. Ragnar Ingi Aðalsteinsson hefur tekið saman stuttar og hnitmiðaðar bragfræðileiðbeiningar til kennara og einnig bendum við á bók hans Bragfræði fyrir unglingastig grunnskóla.

Yngsta stig

Miðstig

Unglingastig

Skilafrestur er til 2. desember 2019

Hægt er að senda vísurnar rafrænt á netfangið [email protected] eða með bréfpósti:

Menntamálastofnun
Vísubotn 2018
B.t. Elínar Lilju Jónasdóttur
Víkurhvarfi 3
203 Kópavogi

skrifað 26. NóV. 2019.