Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember efnir Menntamálastofnun til vísnasamkeppni grunnskólanema, Vísubotn 2019, í samvinnu við KrakkaRÚV. Í keppninni spreyta nemendur sig á því að botna fyrriparta sem eru eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson. Um er að ræða tvo fyrriparta fyrir hvern aldursflokk á yngsta-, mið- og unglingastigi. Fyrir besta vísubotninn á hverju stigi verða veitt bókaverðlaun og viðurkenningarskjöl. Vonast er til að sem flestir skólar taki þátt í þessu verkefni. Hér má lesa um úrslit keppninnar í fyrra.
Hér fyrir neðan má smella á verkefni fyrir hvert stig. Nemendur á mið- og unglingastigi þurfa að huga vel að ljóðstöfum og rími en ætlast er til að nemendur á yngsta stigi einbeiti sér fyrst og fremst að ríminu. Ragnar Ingi Aðalsteinsson hefur tekið saman stuttar og hnitmiðaðar bragfræðileiðbeiningar til kennara og einnig bendum við á bók hans Bragfræði fyrir unglingastig grunnskóla.
Skilafrestur er til 2. desember 2019
Hægt er að senda vísurnar rafrænt á netfangið [email protected] eða með bréfpósti:
Menntamálastofnun
Vísubotn 2018
B.t. Elínar Lilju Jónasdóttur
Víkurhvarfi 3
203 Kópavogi
Á safnvef Menntamálastofnunar, Dagur íslenskrar tungu, er fjöldi áhugaverðra verkefna sem nota má í tilefni dagsins. Þar má einnig nálgast efni vísnasamkeppninnar undir hnappnum Vísur og limrur. Á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins er hægt að nálgast vefi um Jónas Hallgrímsson og margt annað áhugavert, þ.á.m. fjölbreyttan hugmyndabanka sem kennarar geta nýtt sér. Einnig má finna upplýsingar um viðburði í tengslum við daginn á Fésbókarsíðunni Dagur íslenskrar tungu.