1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Skali 1A – Kennarabók

Skali 1A – Kennarabók

Open product
  • Author
  • Grete Normann Tofteberg, Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen, Bjørnar Alseth
  • Media
  • Ýmsir
  • Translation
  • Hanna Krístín Stefánsdóttir
  • Product id
  • 7411
  • Age level
  • Unglingastig
  • Release date
  • 2014
  • Nr. of pages
  • 114

Skali 1A býður upp á innihaldsríka og lifandi stærðfræðikennslu.

Nemendur öðlast bæði skilning og færni með því að vera virkir og leitandi þegar þeir
vinna við stærðfræði. Nemendur og kennarar nota Skala til að lesa stærðfræði, vinna
verkefni, rökræða lausnaleiðir og fást við stærðfræðilegar áskoranir á rannsakandi og
skapandi hátt. Skali vekur áhuga nemenda með því að tengja stærðfræði við daglegt
líf og bjóða upp á fjölbreytilega kennslu. 


Í Skala er lögð áhersla á

• hið faglega innihald, rökrétta uppbyggingu námsefnisins og framvindu námsins
• skýr og nákvæm markmið
• hagnýt dæmi og verkefni
• aðlögun námsefnisins að þörfum allra nemenda í sameiginlegu námssamfélagi
þeirra
• nákvæmar leiðbeiningar og stuðning við kennara sem nýtist áður en kennsla hefst,
meðan á henni stendur og eftir að henni lýkur.


Skali 1 samanstendur af tveimur nemendabókum, tveimur æfingaheftum og
kennarabókum. Kennarabækurnar eru gefnar út á heimasíðu Menntamálastofnunar
og þar er auk þess að finna verkefnahefti, lausnir og annað fylgiefni með flokknum.

 

 

 

 

 

 

 


Other products that might interest you