Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert.
Þá er tilvalið að veita náttúrunni sérstaka athygli og njóta þeirrar fegurðar og kyrrðar sem íslensk náttúra hefur að upp á að bjóða. Af því tilefni getur verið gaman að gefa nemendum færi á að vinna verkefni í tengslum við íslenska náttúru.
Mörg verkefni má finna í verkfærakistu Menntamálastofnunar sem eru einföld í notkun og geta tekið styttri eða lengri tíma. Þar má sérstaklega nefna verkefnabankann Lesið í skóginn sem er samstarfsverkefni með Skógræktinni fyrir öll aldursstig, Hreint haf fyrir mið- og unglingastig sem unnið var í samvinnu með Landvernd, Saman gegn matarsóun fyrir mið- unglingastig sem einnig var unnið í samvinnu með Landvernd og Lifandi náttúra fyrir yngsta stig.