Við framkvæmd samræmdra könnunarprófa á undanförnum árum hefur skapast sú hefð að ekki þurfi að sækja sérstaklega um ákveðnar breytingar eða aðstæður tengdar fyrirlögn prófanna.
Ekki þarf að sækja um sérstaklega ef skólastjóri raðar nemendum í smærri hópa en ella og dreifa á nokkra staði til að auðvelda fyrirlögn.
Ekki þarf að sækja sérstaklega um að nemendur með annað móðurmál en íslensku nýti sér orðalista í stærðfræði án frekari túlkunarþjónustu.