1. Forsíða
  2. Arfurinn | Nýtt námsefni

Arfurinn | Nýtt námsefni

Sagan Arfurinn er skáldsaga, frumsamin með það í huga að nota í kennslu sem byggir á upplestri kennara og samspili kennara og nemenda á meðan lestri sögunnar stendur.

Með bókinni fylgja ítarlegar kennsluleiðbeiningar sem fyrst um sinn verða á rafrænu formi. Í þeim er að finna skýrar og nákvæmar leiðbeiningar með lestri á skáldsögunni Arfinum eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Leiðbeiningarnar eru einkum ætlaðar miðstigskennurum og hugsaðar sem stuðningur við kennslu í lesskilningi. Margar af kennsluaðferðunum sem bent er á og stuðst er við í leiðarvísinum eru gagnreyndar og þekktar innan lestrarfræðanna.

Námsefnið Lesið upphátt - Arfurinn er þýtt og staðfært úr sænsku og er einkum ætlað nemendum í 5.-7. bekk.

skrifað 26. áGú. 2020.