1. Forsíða
  2. Ársskýrsla undanþágunefndar grunnskóla 2016-2017

Ársskýrsla undanþágunefndar grunnskóla 2016-2017

Ársskýrsla undanþágunefndar grunnskóla 2016-2017

Gefin hefur verið út ársskýrsla undanþágunefndar grunnskóla fyrir skólaárið 2016-2017. Hlutverk nefndarinnar er að meta umsóknir skólastjóra um heimild til að lausráða starfsmann sem ekki hefur leyfi mennta- og menningarmálaráðherra til að nota starfsheitið grunnskólakennari.

Í skýrslunni kemur fram að á skólaárinu 2016-2017 voru teknar til afgreiðslu 313 umsóknir um heimild skólastjóra til að lausráða starfsmann sem ekki hefur leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. Af þeim voru 272 umsóknir samþykktar en synjanir voru 41.

Umsóknum um undanþágur hefur fjölgað jafnt og þétt frá hruni, en eru þó enn tæplega helmingur þess sem tíðkaðist fyrir skólaárið 2008-2009. Þegar skólaárið 2016-2017 er borið saman við skólaárið 2015-2016 er um 29,5% fjölgun umsókna milli ára að ræða. Af 272 samþykktum umsóknum fyrir skólaárið 2016-2017 voru umsóknir vegna kvenna 200 eða 74% og vegna karla 72 umsóknir eða 26,5%. Langflestar samþykktar undanþágur eru vegna einstaklinga í menntunarflokki 10 eða 65% af heildarfjölda umsókna. Í þessum flokki eru einstaklingar með háskólagráðu í grunnskólakennarafræðum og í greinum sem tengjast kennslugreinum grunnskóla. Hlutfall einstaklinga sem fá undanþágu án þess að vera með kennslureynslu hefur farið hækkandi nokkur síðustu ár og er nú ríflega helmingur samþykktra umsókna eða 51,5% sem er svipað hlutfall og var skólaárið 2010-2011. Flestir einstaklingar hafa fengið undanþágu til almennrar kennslu eða 41%. Meirihluti umsókna eru vegna einstaklinga á aldursbilinu 31-40 ára eða 48,2%.

Nánari upplýsingar um störf undanþágunefndar grunnskóla má sjá hér.  

skrifað 19. MAR. 2018.