1. Forsíða
  2. Auka kynningarfundir

Auka kynningarfundir

Ákveðið hefur verið að bæta við kynningarfundum vegna samræmdra könnunarprófa í Vestmannaeyjum og á Snæfellsnesi.

Fundur verður haldinn í Grunnskóla Vestmannaeyja þann 14. febrúar klukkan 13:00 og í Grunnskóla Grundafjarðar 16. febrúar klukkan 14:30.

Fundirnir eru ætlaðir fræðslustjórum, skólastjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki skóla sem kemur að framkvæmd prófanna. Kynnt verður væntanleg rafræn fyrirlögn á samræmdum könnunarprófum og þær breytingar sem verða gerðar á samræmdum könnunarprófum vorið 2017. Áætlað er að fundurinn taki klukkutíma og gefst tækifæri til fyrirspurna.

Nánar um dagsetningar kynningarfunda.

 

skrifað 08. FEB. 2017.