1. Forsíða
  2. Nýr fundur ákveðinn á Ísafirði

Nýr fundur ákveðinn á Ísafirði

Kynningarfundur verður haldinn á Ísafirði 21. febrúar kl.14:00 en fundur sem fyrirhugaður var þar 7. febrúar féll niður vegna veðurs. 

Fundirnir eru ætlaðir fræðslustjórum, skólastjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki skóla sem kemur að framkvæmd prófanna. Kynnt verður væntanleg rafræn fyrirlögn á samræmdum könnunarprófum og þær breytingar sem verða gerðar á samræmdum könnunarprófum vorið 2017. Áætlað er að fundurinn taki klukkutíma og gefst tækifæri til fyrirspurna.

Nánar um dagsetningar og skipulag kynningarfunda.

skrifað 09. FEB. 2017.