1. Forsíða
  2. Nýr vefur með dönsku námsefni

Nýr vefur með dönsku námsefni

Vefurinn Tempo hefur nú verið settur í loftið og er hann ætlaður til dönskukennslu og hentar nemendum í 6. til 10. bekk. 

Tempo skiptist í fimm þemu: 

  • HVERDAGEN
  • MIN LILLE VERDEN
  • KROP OG LIVSTIL
  • NORDEN
  • DEMO

Efnið  byggir á svipuðum viðfangsefnum og þeim sem eru í kjarnaefni í dönsku hjá Menntamálastofnun og er áhersla á færniþættina lesskilning, samskipti, ritun og menningarlæsi.

Fjölbreytt verkefni eru á vefnum og töluverð áhersla er á notkun tölva eða snjalltækja við lausn þeirra. Greinargóðar leiðbeiningar fylgja hverju og einu forriti sem býður upp á að nemendur og kennarar sjái möguleikana í að nýta þau í námi og kennslu.

skrifað 22. JAN. 2021.