1. Forsíða
  2. Nýtt námsefni í íslensku - Refurinn

Nýtt námsefni í íslensku - Refurinn

Refurinn tilheyrir lestrarbókaflokknum Milli himins og jarðar þar sem markmiðið er að virkja áhuga nemenda til lestrar.

Í bókinni eru fræðitextar um refinn og mikið lagt upp úr ljósmyndum og teikningum sem styðja við textann og vekja forvitni og áhuga. Myndasögur, kvæði og þjóðsögur koma einnig fyrir. Neðst á hverri blaðsíðu eru spurningar til þess ætlaðar að staldra við og ræða það sem lesið var um. Spurningar í refaskotti leiða nemandann á næstu síðu þar sem svarið er að finna. Aftast í bókinni eru nokkur verkefni. 

Bókina má einnig nálgast sem rafbók og hljóðbók

skrifað 11. DES. 2019.