1. Forsíða
  2. Smátímasögur sem hljóðbók

Smátímasögur sem hljóðbók

Bókin Smátímasögur hefur nú verið gefin út sem hljóðbók en í henni eru smásögur eftir tíu þekkta barnabókahöfunda. Bókin er fyrir nemendur á miðstigi og hafa sögurnar verið lesnar upp á degi barnabókarinnar.

Sögurnar segja m.a. frá mismunandi heimum, farið í heimsókn til álfa, krakkar flakka á milli ólíkra heima og gæludýrin í hverfinu funda stíft þegar nýtt dýr flytur á þúfuna þeirra.

skrifað 02. MAR. 2020.