Skemmtilegt viðtal var við vinningshafa Ljóðaflóðs var í þættinum Húllumhæ sl. föstudag.
Höfundar ræddu um ljóðin sín og höfðu meðal annars á orði að ljóðasamkeppnin væri mikil hvatning til allra krakka sem skrifa ljóð, skrifa ekki ljóð eða langar að skrifa ljóð. Það væru margir sem áttuðu sig ekki á því hvað ljóð geta verið skemmtileg, það sé gaman að fá skrýtnar hugmyndir og útfæra þær í ljóði. Síðan væru ljóð líka góð leið til að varðveita íslenskuna.
Hér stíga fram skáld framtíðarinnar!
Nánar um úrslitin má sjá í frétt um úrslit Ljóðaflóðs 2021.