1. Forsíða
  2. Út fyrir boxið | Handbók og verkfærakista fyrir kennara

Út fyrir boxið | Handbók og verkfærakista fyrir kennara

Út fyrir boxið er handbók og verkfærakista fyrir kennara í grunn- og framhaldsskólum sem fjallar um hönnunarhugsun og sýnir möguleikana sem hún býður upp á í skólastarfi. Handbókin er stuðningsefni fyrir 42 spjöld með skref-fyrir-skref leiðbeiningum um notkun aðferða skapandi hugsunar í skólastarfi. 

Spjöldin er hægt að nota þegar verið er að skipuleggja verkefni og kennsluhætti bæði í einstökum námsgreinum og í tengslum við raunveruleg þverfagleg verkefni. Hönnunarhugsun stuðlar að skapandi og virkum lærdómi nemenda og stuðlar að samvinnu, upplýsingaöflun, hugmyndavinnu og sköpun lausna.

skrifað 15. DES. 2023.