1. Forsíða
  2. Kannanir og skýrslur

Kannanir og skýrslur

Undanfarin ára hafa verið gerðar nokkrar rannasóknir á námsefni. 

  • Skýrsla um opið menntaefni á Íslandi

    Nói Kristinsson vann skýrslu um opið menntaefni fyrir Námsgagnastofnun í júlí 2012. 

    Opna skýrslu

  • Rannsókn á stöðu námsbóka gagnvart sex grunnþáttum menntunar.

    Erla Karlsdóttir  skoðaði stöðu námsbóka Námsgagnastofnunar gagnvart sex grunnþáttum menntunar; læsi, sjálfbærni, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, heilbrigði og velferð og sköpun. 

    Þessari skýrslu er skipt í tvo hluta og í þeim fyrri verður kannað hvernig mennta- og menningarmálaráðuneytið sér fyrir sér hvernig hægt er að bera sig að við undirbúning á því að grunnstoðirnar fái farveg inn í grunnskólakennsluna út frá almennum hluta aðalnámskrár. Því næst verða grunnþættir menntunar tilgreindir og skýrðir, einnig út frá almenna hlutanum.

    Síðari hluti skýrslunnar er þannig upp byggður að hver námsgrein verður tekin fyrir, fyrst stærðfræði, þá íslenska og síðast samfélagsgreinar. Innan hverrar greinar verða þær bækur sem skoðaðar voru tilgreindar, nefnd eru dæmi um kafla í hverri bók sem hægt er að finna miðlun ákveðins grunnþáttar og þar næst er tekið eitt dæmi úr hverjum þætti og skýrt nánar. 

    Opna skýrslu

  • Námsefni í samfélagsgreinum í tengslum við grunnþætti menntunar

    Sumarið 2013 störfuðu  tveir masternemar við HÍ á Námsgagnastofnun við rannsóknir á námsefni.  Þær niðurstöður sem hér birtast eru því úr rannsókn á námsbókum í sögu fyrir miðstig grunnskólans ásamt tveimur bókum í trúarbragðafræði. Við úrvinnslu rannsóknarinnar var sá háttur hafður á að ein bók var tekin fyrir í einu ásamt því efni og fylgigögnum sem fylgja hverri bók. Við lestur bókarinnar var rýnt í það hvar möguleikar um grunnþáttakennslu liggja, óháð því hvort efnið var tekið upp í kennsluleiðbeiningum eða á verkefnablöðum.

    Opna skýrslu

     

  • Skýrslur starfshópa

    Skýrsla starfshóps í íslensku á yngsta stigi 2007

    Skýrsla starfshóps í íslensku á miðstigi 2009

    Skýrsla starfshóps í íslensku á unglingastigi 2009

    Skýrsla starfshóps í sögu 2013.

    Skýrsla starfshóps í ensku 2013

    Skýrsla faghóps í trúarbragðafræði 2013

    Skýrsla starfshóps í upplýsingatækni 2013