Búddhatrú – Leiðin til Nirvana er önnur bókin í bóka flokknum Trúarbrögð mannkyns og er hún ætluð til trúarbragðafræðslu á mið- og unglingastigi grunnskóla. Rakin er saga Búddha og sagt frá kenningum hans. Þá eru lýsingar á helgisiðum, venjum og hátíðum, sagt frá útbreiðslu trúarbragðanna og hinum ýmsu stefnum þeirra. Einnig er greint frá íslenskum söfnuðum búddhatrúarmanna.