Efnisheimurinn er námsbók í efnafræði sem er ætluð efstu bekkjum grunnskólans. Hún fjallar um helstu flokka efna, frumeindir og sameindir, efnabreytingar og lotukerfið. Í bókinni er fjöldi einfaldra athugana sem flestar er hægt að gera með áhöldum og efnum úr eldhúsinu heima. Auk þess að þjóna markmiðum aðalnámskrár í náttúrufræðum er helsti tilgangur bókarinnar að efla skilning nemenda á hlutum og fyrirbærum daglegs lífs.