Þessi vinnubók fylgir samnefndri lestarabók í flokknum Auðlesnar sögubækur.
Bókin er ætluð nemendum á mið- og unglingastigi grunnskóla. Verkefnin henta vel nemendum sem eru með annað móðurmál en íslensku og þeim sem þurfa að styrkja málvitund sína af öðrum ástæðum. Jafnan fylgir hverjum kafla í sögubókinni ein opna í vinnubókinni og miðað er við að nemendur leysi verkefnin eftir að hafa lesið kaflann.
Lögð er áhersla á að nemendur fái þjálfun í að tengja saman lestur sögubókar og vinnubókar og noti því bækurnar samtímis. Í vinnubókinni er athygli þeirra beint að lesskilningi, orðaforða, léttri málfræði og ritun.
Bókin Engar ýkjur er sjálfstætt framhald af bókunum Lygasaga og Lokaorð.