Fjör og fræðsla er nýr vefur sem byggir á hugmyndum og verkefnum frá vefnum Paxel123, sem þróaður var af Önnu Margréti Ólafsdóttur. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu miðlar nú efninu á nýjan leik og er markmið vefsins að styðja við fjölbreytta kennsluhætti fyrir nemendur. Fjör og fræðsla veitir þannig kennurum einfaldar, sveigjanlegar og hvetjandi leiðir til að efla nám og gleði í kennslu.