Grænu skrefin! Kennsluleiðbeiningar
Um er að ræða kennsluleiðbeiningar með bókinni Grænu skrefin! sem er kennslubók í umhverfismennt. Í kennsluleiðbeiningunum eru settar fram hugmyndir um hvernig hægt er að útvíkka efnisþættina í bókinni og kveikja áhuga nemenda á efninu. Mikið er lagt upp úr vinnu með orðaforða í umhverfismennt. Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, s.s. samræður, hópavinnu, sköpun o.fl.