1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Halló heimur 2 - Nemendabók

Halló heimur 2 - Nemendabók

  • Höfundur
  • Jónella Sigurjónsdóttir og Unnur María Sólmundsdóttir
  • Myndefni
  • Iðunn Arna
  • Vörunúmer
  • 6298
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2022
  • Lengd
  • 128 bls.

Halló heimur er kjarnaefni í samfélags- og náttúrugreinum fyrir yngsta stig grunnskóla.

Bókin er 9 kaflar, 4 í náttúrugreinum og 5 í samfélagsgreinum. Kaflarnir eru Vatn, loft og hljóð, Líkami og sál, Fuglar og villt spendýr, Verum örugg, Landnám Íslands, Trú landnámsfólks, Hver er ég? og Einu sinni var.
Í upphafi hvers kafla eru markmið hans sett fram ásamt fallegri opnumynd sem gefur innsýn í efni kaflans. Opnumyndin býður upp á ýmsa möguleika í upphafi kafla. Bókin er ríkulega myndskreytt með teikningum og ljósmyndum sem tengjast vel textanum. Á hverri opnu eru dregin fram 3 ný orð sem verðugt er að vinna með í tengslum við efnið til að auka orðaforða nemenda. Aftast í bókinni eru einfaldar útskýringar á orðunum. Hverjum kafla lýkur með hugmyndum að umræðum og verkefnum.
Námsefninu fylgja ítarlegar kennsluleiðbeiningar á vef. Þar eru upplýsingar um tengingu námsefnisins við m.a. hæfniviðmið og lykilhæfni aðalnámskrár, grunnþætti og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Einnig hefur verið tekinn saman fróðleikur um efni hvers kafla, áhugaverða tengla og umræðupunkta tengda efni kaflans.
Útfærslur á fjölmörgum verkefnum í tengslum við efni kaflanna eru útfærðar á skemmtilegan hátt í kennsluleiðbeiningum. Verkefnin tengjast öðrum námsgreinum eins og íslensku, hlustun, ritun, orðaforðavinnu, tölum, talnavinnu, stærðfræði og útikennslu.

Verkefnabók fylgir námsefninu.  


Tengdar vörur