Hraðar - hærra - sterkar er í flokki leshefta fyrir mið- og unglingastig grunnskóla. Efnið tekur mið af áhugamálum nemenda. Í heftinu er fjallað um sögu Ólympíuleikanna að fornu og nýju; sumarleika, vetrarleika, Smáþjóðaleika og Ólympíuleika fatlaðra. Sérstaklega er fjallað um þátttku Íslendinga á Ólympíuleikunum og ýmsa athyglisverða fróðleiksmola sem sem tengjast þessum stærsta íþróttaviðburði veraldar. Aftast eru orðskýringar og fjölbreytt verkefni.