Hugrún – Sögur og samræðuæfingar er ætluð til heimspekilegrar samræðu með börnum á yngsta stigi og miðstigi grunnskóla.
Í bókinni eru 19 sögur sem fjalla m.a. um sannleika, skilning, nísku, frelsi, óendanleika, mannlegt eðli, fréttamat, vináttu, kærleik, fallegt og ljótt. Á eftir hverri sögu er umræðuverkefni. Fremst í bókinni er inntak hverrar sögu kynnt. Bókinni fylgir vinnubók sem hægt er að nota samhliða lestri hennar.