1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Ísland hér búum við

Ísland hér búum við

  • Höfundur
  • Hilmar Egill Sveinbjörnsson
  • Myndefni
  • Adam Hoffritz og Freydís Kristjánsdóttir
  • Vörunúmer
  • 7334
  • Skólastig
  • Miðstig
  • Útgáfuár
  • 2018
  • Lengd
  • 96

Bókinni er skipt í þrjá hluta. Í fyrsta hlutanum er fjallað um kort og kortalestur, náttúru Íslands, náttúruauðlindir, atvinnulíf og umhverfi.

Í öðrum hluta bókarinnar hefur landinu verið skipt upp og er rætt sérstaklega um hvern landshluta fyrir sig: Vesturland, Vestfirði, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland, Suðurnes, höfuðborgarsvæðið og hálendið. Í hverjum landshlutakafla er fjallað um sérkenni náttúru, mannlíf, atvinnulíf og samgöngur, auk þess sem rætt er um valda staði. Þeim fylgja líka falleg kort svo auðveldara sé að átta sig á ýmsum staðreyndum.

Í þriðja hluta bókarinnar er örstutt umfjöllun um heimabyggðina. Þar er sjónum beint að nærumhverfi nemenda. Ítarlegar er unnið með þann hluta í verkefnabók sem fylgir kennslubókinni.


Tengdar vörur