Vefurinn er tvískipur: Annars vegar eru krækjur inn á ýmis konar fróðleik á vegum Íslenskrar málstöðvar. Hins vegar eru umræðuefni og verkefni er tengjast stöðu málsins. Titlarnir eru eftirfarandi: Lítil og stór tungumál, Íslenska fyrr og nú, Ný orð, Á íslensku og á útlensku, Ritreglur, Nöfnin okkar og Að læra íslensku sem erlent mál. Þeir hafa svo flestir nokkra undirtitla.