Námsefnið Íslenska staf fyrir staf A er ætlað nemendum frá 10 ára aldri sem eru að hefja lestrarnám með latnesku letri. Efnið tekur mið af hæfniviðmiðum forstigs í íslensku sem öðru tungumáli í aðalnámskrá grunnskóla.
Bókin skiptist í sex kafla, í hverjum kafla er stafainnlögn þar sem hljóð stafanna er kennt, orðleysur þar sem hljóðin eru þjálfuð og orðaforði byggður á orðum úr þeim stöfum sem búið er að leggja inn og þjálfa.
Kennsluleiðbeiningar eru á vef.