Markmið skriftarnámsins er að nemandinn þjálfist í skrift sem nýtist honum vel í skólastarfinu og í daglegu lífi síðar meir. Í bókunum er lögð áhersla á að skrift er hreyfing og farið frá auðveldu kroti til stæðilegrar rithandar. Aðaláhersla er á skriftarhreyfinguna, litlu stafina og tengingu þeirra en hún eykur flæði skriftarinnar. Til að auðvelda námið er litlu stöfunum skipt í fjölskyldur. Stafir með skyld form, og því svipaðar stafaslóðir, eru í sömu fjölskyldu og hver fjölskylda á svo sinn lit. Í bók 1A eru a og b fjölskyldurnar kenndar.