1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Ítalíuskrift 2B

Ítalíuskrift 2B

  • Höfundur
  • Freyja Bergsveinsdóttir og Gunnlaugur SE Briem
  • Myndefni
  • Freyja Bergsveinsdóttir og Gunnlaugur SE Briem
  • Vörunúmer
  • 7096
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2011
  • Lengd
  • 32 bls.

Markmið skriftarnámsins er að nemandinn þjálfist í skrift sem nýtist honum vel í skólastarfinu og í daglegu lífi síðar meir. Í bókunum er lögð áhersla á að skrift er hreyfing og farið frá auðveldu kroti til stæðilegrar rithandar. Aðaláherslan er á skriftarhreyfinguna, litlu stafina og tengingu þeirra en tengingin eykur flæði skriftarinnar. Til að auðvelda námið er litlu stöfunum skipt í fjölskyldur. Stafir með skyld form, og því svipaðar stafaslóðir, eru í sömu fjölskyldu og hver fjölskylda á svo sinn lit. 

Í Ítalíuskrift 2B eru stafirnir rifjaðir upp ásamt skriftarhreyfingunni og haldið áfram að skrifa. Ítalíuskriftin er læsileg og góð hversdagsskrift sem felur í sér marga möguleika til þróunar á fallegri rithönd.