Læstur inni er önnur bókin af átta þar sem áhersla er lögð á að æfa markvisst samhljóðasambönd í léttum og lifandi texta.
Hinar bækurnar eru Leynifélagið Skúmur, Úti að aka, Á spani, Á strönd, Í gjótu, Í lofti og Hjá risaeðlu.
Í Læstur inni eru sérstaklega æfð orð með st, str og strj. Samhljóðasambandssögurnar eru hluti af Smábókum Námsgagnstofnunar. Flokkurinn er ætlaður börnum sem eru að þjálfa lestur. Honum er skipt í fimm þyngdarstig og eru samhljóðasambandssögurnar í 3. flokki.