Í þessum leiðarvísi er að finna skýrar og nákvæmar leiðbeiningar með lestri á skáldsögunni Arfinum eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Leiðbeiningarnar eru einkum ætlaðar miðstigskennurum og hugsaðar sem stuðningur við kennslu í lesskilningi. Margar af kennsluaðferðunum sem bent er á og stuðst er við í leiðarvísinum eru gagnreyndar og þekktar innan lestrarfræðanna.
Sagan Arfurinn er skáldsaga, frumsamin með það í huga að nota í kennslu sem byggir á upplestri kennara og samspili kennara og nemenda á meðan lestri sögunnar stendur.
Námsefnið Leiðarvísir um upplestur, læsi og lestraraðferðir er þýtt og staðfært úr sænsku og er einkum ætlað nemendum í 5.-7. bekk.
Hér má sjá kynningu á bókunum á rafrænu opnu húsi Menntamálastofnunar þann 19. ágúst 2020.