Leikgleði - 50 leikir, fyrir yngsta, mið- og unglingastig.
Leikgleði inniheldur 50 leiki og er markmið þeirra að efla skynþroska barna, auka samvinnu þeirra og félagsfærni. Þegar veður leyfir er gaman að fara í leikina utan dyra en þar fá þau meira áreiti fyrir öll skynfærin en innan dyra.
Leikirnir skiptast í þrennt; námsleiki, samvinnuleiki og hreystileiki.
Bókin er sett upp sem rafbók og má prenta hana út í heild eða einstaka leiki.